Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Leit

London

12. maí 2008 klukkan 21:31

Bara svona smá bloggerí :)

Búinn að panta þriggja nátta ferð til London og bauð Esther sætu með :)
Mamma gamla ætlar að passa Guðmund á meðan og verður vonandi bara stuð... förum út eld snemma fimmtudaginn 12 júní og komum heim seint á sunnudegi.
Hótelið sem við verðum á er í götu sem liggur í beinu framhaldi af oxford street sem er 2,5 kílómetrar og með yfir 300 búðir... ekki slæmt :)



Svo vil ég bara óska Hrönn til hamingju með litla rauðhærða strákinn sinn! :D

og já... bara búið að vera snarbilað að gera hjá mér í vinnunni, alveg nóg að gera þar og svo hef ég engann tíma í svona bloggstúss :P Búið að vera svaka gaman um helgina, fór í mat til Hrannar, Gumma og Rósu í Melasíðunni með Esther, fórum líka í sund í gær í Þelamörk eftir að ég kom heim með Guðmund úr tveggja tíma morgunlabbitúrnum okkar :)
Ótrúlega gaman hjá honum í rennibrautinni... þurfum að fara fara meira í sund þegar veðrið er svona flott!

oki, komið gott ;)

- Heidarr

Heiđar Róbert

Nýtt líf

15. apríl 2008 klukkan 09:51
Já ég held það... þetta eru engan vegin þeir lifnaðarhættir sem ég hafði vanið mig á undanfarna mánuði. Það þarf ekki að fara lengra aftur heldur en einhverntíman í mars þá vissi ég ekki einusinni að þessi tími dags væri til. Fyrir hádegi virka daga? Hvað er það ;)
Ég á að mæta í vinnu kl 16 í dag og er nú þegar búinn að vera vakandi síðan 7 eins og flest alla daga :)

Ég man þegar líf mitt snérist út á að vakna kl 14 á daginn og koma sér í langt bað áður en maður fer og fær sér eitthvað tilbúið að borða eins og subway, brauðstangir, bakaríið eða eitthvað þessháttar og svo vinna. Eftir vinnu svo fengið sér einhvernveginn mismunandi pitsu. Dagurinn gekk bara út á að velja góða pitsu fyrir kvöldið ;) Svo bara vakið fram eftir til svona 6 að morgni við sjónvarpið og tölvuna og rólegheit bara.

Í síðustu viku borðaði ég fisk 3 sinnum, pítu einusinni, pasta einn daginn og svo heimabakaða pitsu. Vakna alltaf um 7 leitið svona sirka og búinn að vera að vinna á daginn :)
Ég er líka búinn að vera með tvo næturgesti hjá mér...

Mamma fór með Rúnari til spánar fyrir meira en viku og er þar enn... Esther er búin að vera hér hjá mér allan tíman og hjálpa mér að sjá um þessa gemlinga (Jenný og Gunnar) og Guðmundur er hér auðvitað líka :) Búið að vera rosalega góður tími og Mamma mætti alveg vera bara aðeins lengur úti ;)

hérna eru smá myndir :)

"Nei Heiðar... Ég veit ekki hvað varð um súkkulaðið þitt..."

Photobucket

Ég og Esther
Photobucket

Jenný
Photobucket

Guðmundur og Gunnar
Gunnar og Guðmundur

- Heidarr
Heiđar Róbert

Yeah We'll shine like stars in silver light...

03. apríl 2008 klukkan 15:41
Jæja gott fólk, ég hef ekkert gleymt ykkur, bara ekki verið nóg heima til að hafa tíma í eitthvað bloggstúss :)

Annars er bara allt gott að frétta, er alveg að fara komast á dagvaktir :D og svo eru gamla og Rúnar að fara til útlanda á laugardaginn (suður á morgun) svo ég verð einn með vitleysingana hér heima í tvær vikur... nema maður fái gesti?

Búið að vera nóg að gera í vinnunni bæði í Strax og svo í verðkönnunum og ekki kvarta ég yfir því :) Hef bara voða gaman af þessu.

Langar á James Blunt takk fyrir!

You're beautiful you're beautiful
you're beautiful its true ;*


jæja ætli maður þurfi ekki að koma sér í vinnu aftur :)

- Heidarr
Heiđar Róbert

Draumheimar uppfćrđir?

23. mars 2008 klukkan 07:12
Tók einhver annar eftir því í nótt?

allavega þá er klukkan að verða 7 núna og ég á að mæta í vinnu eftir rúman klukkutíma... ég er gjörsamlega ósofinn að öllu leiti og enn í sjokki eftir nóttina. Mig er búið að dreyma þvílíka ruglið og fuuuullt af fólki úr fortíðinni sem ég var eiginlega bara búinn að "gleyma". Eða semsagt ekki gleyma heldur hef ekki samband við enn þann dag í dag.
Ekki voru þetta spennandi draumar, ég vaknaði eitthvað um kl 3 og hélt ég færi ekkert að sofa aftur eftir 2 tíma svefn. Þá var mig að dreyma að ég væri á leiðt til Gísla og Söndru. Ég var með fullt af smádrasli með mér og kominn í blokkina þeirra, sem var allt í einu með lyftu? :S
Allavega þá var ég að tala við Stebba í símann (sem ég hef aldrei gert og hann er með símafóbíu). Hann var að reyna að útskýra fyrir mér einhverja tegund af áfengi þegar síminn deyr og rafmagn dettur af blokkinni. Þá sé ég kúnna úr búðinni standa þarna öskureiður yfir því að allt dótið var útum allt þarna, sem ég var með. Ég byrja að týna það upp í balann sem ég var með :S Sé svo að hann er að reyna að fá lyftuna til að virka, hún fer upp og skellur svo niður með látum. Litirnir og hljóðin voru svo raunveruleg, ég hélt þetta væri að gerast. Svo kviknaði í blokkinni og ég lá hérna í sjokki! Var að hugsa, ætli þetta hafi verið mér að kenna, var þetta útaf draslinu mínu? Hverjum get ég bjargað??? Sjitt þetta var aðeins of raunverulegt.
 Fór fram og slökkti á tölvum og drasli hehe fékk mér vatnssopa og lagðist aftur en hræddur við að sofna.
Ég man ekki mikið meira úr þeim draumnum en ég var allavega alveg að skíta á mig

Mér tókst að sofna aftur... og þá dreymdi mig alveg helling, áfram í lit og bara í alvöru eins og þetta væri að gerast.
Það sem gerðist var meðal annars að ég gleymdi lyklinum í bílnum mínum hér heima, fór inn og þegar ég leit út aftur var hann horfinn.
Ég fór út og sá BMWinn, bílinn minn, og merktann bíl af Þrif og ræstivörum tekna, ég hljóp aðeins út götuna í sjokki og sagði Rúnari frá þessu, hann sagði bara já við getum ekkert gert. Við kaupum bara nýja.
Einhverra hluta vegna var ég þá kominn í einhverja aðra vinnu og þar sá ég Hollywood (Óskar Pál) og hann var búinn að kaupa sér hús sem hann átti enganveginn efni á. Hann var að fara selja það til að eiga fyrir bílnum sínum. Ég spurði hann hvernig hann hefði það og það var sko ,,Skiptir það máli?" svarið. Hef ekki séð hann í meira en ár. Þar hitti ég Lenu Sif á einhverjum rugluðum jeppa og nýbúin að taka venjulegt bensín á hann! uuu og það var á bílastæðinu hjá Bjarna nema hann var ekkert þarna. Eitthvað fólk safnaðist saman þarna og ég þekti engann en allir fóru að reykja nema ég... og einn gaurinn spurði hvort mér þætti þetta óþægilegt og ég sagði neinei, hann rétti mér þúsund kall og sagði hérna. Ég tók hann og gekk í burt. Það var svartur köttur áberandi í þessum draum... var eitthvað í kringum húsið mitt.
Ég veit ekki alveg hver það var en það var einhver stelpa hjá mér og hún var að vekja Gunnar Bjarka sem var í gamla Jennýar herbergi sem er ekki í notkun núina. Ég skildi ekkert afhverju hún var ekki hjá mér eftir að ég var nýbúinn að hafa martröð! haha já, mig dreymdi að ég skildi ekkert í því að hún var ekki að knúsa mig eftir þessa svaka martröð fyrr um nóttina ;) - man voða lítið meira núna...

en já... mig hefur ekki dreymt þannig að ég muni það svo vikum skiptir. En nú var aldeilis snúið því við. Vaknaði tvisvar upp við draum í miklum lit, hljóð og myndgæðum og ákvað bara að blogga því ég nennti ekki aftur að sofa :P Ekkert gaman að sofa ef maður er bara í óþægindum. Reyni bara betur næstu nótt ;)
Jæja, hættur þessu rugli ;) Gleðilega páska.

- Heidarr
Heiđar Róbert

Gleđilegann Stórhátíđarkaupsdag!

21. mars 2008 klukkan 11:49
Hahh! mér tókst að plata Hall til að leyfa mér að mæta tveim tímum fyrr í dag! ;) jájá gleði gleði...

En já, margt búið að vera gerast hjá mér svona undanfarið :) Í gær leiddist mér og ákvað að kíkja til Öggu og Kjarra fyrir vinnu og við fengum okkur kaffi og spjall, svo fór ég í vinnu. Eftir vinnu keyrði ég Regínu heim til sín og svo á Vélsmiðjuna en heima hjá henni hitti ég ægilegar dúllur :D ætla ekki að fara að staðhæfa heitin á þessu því ég kann voða lítið á þetta en ég held þetta séu Boxer hundar? já... held það... allavega tveir af þeim. Svo voru kisur og fiskar og bara allur pakkinn...

eeen... svo var bara farið og pikkað upp Vigdísi og við fengum okkur ís og góðan rúnt til hálf 2 aftur. Takk fyrir kvöldið.
En fyrir ykkur sem hafið áhyggjur af þessu (Kolla!) Þá erum við bara vinir ;) Strákar geta alveg átt stelpuvini.

Allavega, þá er lokað í öllum verslunum á Akureyri nema minni og nei, ég flokka 10-11 ekki sem verslun þannig að það er sennilega nóg að gera í dag enda fólk með áráttu fyrir því að geta keypt eitthvað alla daga ársins. Í raun er held ég ágætt að hafa svona búð opna á meðan allar hinar eru lokaðar og allir í fríi... En allavega auglýsing: Samkaup/Strax Borgarbraut á Akureyri: Opið allan sólahringinn Alla páskana!

Jamm... huhh gaman að segja frá því að það sem ég man best eftir frá síðustu jólum er þegar ég var að vinna 26.des og það var brjálað að gera... Og annar hver kúnni var hneikslaður yfir því að það væru ekki til nýjar samlokur í þessari búllu! HAHA það er satt... hvaða bull er það að fólk geti ekki rifið sig á fætur 25 des og fara að smyrja samlokur fyrir okkur rugluðu Íslendinga. Hvað er fólk samt að fá sér samloku á jólunum... en já, ætli þetta sé ekki frekar léleg þjónusta að bjóða ekki upp á samlokur á hátiðardögum svo við pöntuðum mjög mikið núna ;)

En já... "pimp my room" í boði Jenný syss, hérna eru myndir af því sem hún er búin að gera á herbergisvegginn sinn og líka hjá Gunnari:

Photobucket
Photobucket
Photobucket
Fyrir þá sem þekkja ekki fyrirmyndirnar þá er þetta Tokio Hotel hljómsveitin og hún málaði þetta upp eftir eigin teikningum af þeim.

Í dag er létt á mér og góður dagur. Í gær losnaði ég við vondan draug sem er búinn að vera elta mig :)

Jæja Gleðilega
páska! :D


- Heidarr
Heiđar Róbert

ný ást

18. mars 2008 klukkan 14:30
ég held ég sé ástfanginn...

svolítið mjúk og chubby en það er bara betra

lítur svo roooosalega vel út, svo girnileg að ég gæti étið hana.

Lyktin lokkar mann að alveg úr kílómetra fjarlægð

Sæt og hlý...

kemur manni í gott skap á hverjum degi..

kostar ekki mikið

bara bragðið af pepperóníinu og bráðna ostinum með bbq sósunni mmmmmh

En já, það er rétt hjá ykkur, ég elska subway... hvenær ætli þeir byrji að framleiða 24 tommu subway?
Ég meina, fyrir okkur feita fólkið sem elskum að borða gott og mikið í hádeginu? Ég þurfti áðan að kaupa mér tvo 12" báta og stóð því tvisvar í röð... hefði svosem getað keypt tvo í fyrra skiptið en það er aukaatriði...

love it... jæja, later
Heiđar Róbert

:)

18. mars 2008 klukkan 00:40
Að frelsa heiminn er eins og að standa uppi á stól
í stóru veitingahúsi og kalla út í salinn:
Hér inni er stúlka í allt of þröngum kjól.
Og öllum er ljóst, að þessi maður er galinn.

Það er sama, þótt þú sért góður maður og gegn
og gangir í hlé eins og drengur, saklaus og feiminn.
Þú ræðst samt alltaf á það, sem þér er um megn,
og þessvegna tekst þér aldrei að frelsa heiminn

- Steinn Steinarr
Heiđar Róbert

Nýr dagur - Nýtt blogg...

17. mars 2008 klukkan 14:59
Já, þið sjáið rétt. Hér er ég að blogga mitt þriðja blogg á þriðja degi!
Allavega þá vildi ég byrja bara á smá tauti að þessu sinni :)

Eða það er nú bara þannig að ég skil ekki suma dýraeigendur...
Ég var að keyra Eyjafjörðinn áðan (meira um það á eftir) en allavega á leiðinni út að Hrafnagili þá var ég að keyra á 90 og sé þá tvær manneskjur á göngu eftir veginum en á móti mér kemur hlaupandi á fullu hundur! Afhverju var hann laus? Hvað ef hann hefði hlaupið á bílinn? Ætli hundar geri sér grein fyrir því hvað gerist ef þeir fara rétt svo fyrir bílinn? Gæti vel trúað að þetta fólk hugsi að þetta sé góður hundur og hlíðir þeim alveg, gerir engum mein og þarf ekkert að vera í bandi og allt það... Eeen... hvað ef málið snýst ekkert um hvað hundurinn gerir heldur hvað gerist fyrir hundinn?
Á leiðinni til baka, hinumegin í firðinum, var ég að keyra framhjá bóndabæ og þá kom hlaupandi út á götuna annar hundur og mér dauðbrá, á ekki nema 90 aftur og munaði minnstu að ég misti stjórn á bílnum. Bara svona spá, að ef einhver alveg óreyndur ökumaður er á ferð þarna er ekkert víst að hann nái að beygja frá hundinum.
Allavega þá er versta upplifun mín í þessu lífi sennilega þegar ég var að spila fótbolta og kona gekk framhjá vellinum með hund í bandi, hundurinn síðan fór út á götu og það endaði þannig að við horfðum á greyjið deyja á miðri götunni eftir að jeppi keyrði á hann á ekki nema svona 40kmh.

Já okey, komið nóg af þessu?
Allavega, keyriði hægt um hverfisgötur og hundaeigendur endilega passið ykkur á því að allir hundar hafa ekki vit á umferðinni!

Jæja, en þá að einhverju allt allt öðru, fór að spá... hvað er langt síðan þið settust bara upp í bíl og keyrðuð einhver bara til að skoða? Ekki bara keyra á 120 milli staða heldur bara njóta útsýnisins? Maður þarf nefnilega ekki að keyra nema rétt út fyrir bæjinn til að sjá ótrúlega fallega staði.
Ég allavega fór í dag smá rúnt og fékk mér göngutúr í skógi í snjónum með fuglunum og villiköttunum ;)
Ægilega gaman og fallegt. En bíllinn minn sem ég var svo duglegur að þrífa í gær, er kominn í sitt gamla góða form ;) hehe

smá myndir frá því í dag...
Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket
Photobucket
Photobucket

Jæja, allavega, mottó dagsins, hlutirnir gerast ekki af sjálfum sér... uppgjöf er að tapa

hmm já, farinn í vinnu :)
-Heidarr
Heiđar Róbert

Dugnađur í gangi ;)

16. mars 2008 klukkan 22:13
Já okey, ég veit sjálfur ekki hvað er í gangi... eftir að hafa hlaupið 5 kílómetra í gær var bara tekið því rólega og fór svo á Kaffi Ak og hitti þar Kollu í spjall :) Takk fyrir kveldið kollz.
Svo var vaknað hálf 8 þennan sunnudagsmorgun og vinna til 16. Var ekkert smá duglegur í morgun og sópaði bílaplanið og tók allt rusl eftir helgina, sem var alveg ágætis slatti! En eftir vinnu gerði ég enn frekari afrek og skolaði duglega af bílnum mínum. Búið að þrífa litla skrjóðinn minn ;)

Ekki nóg með það heldur fór ég í fótbolta með Bjarna í sirka einn og hálfan tíma eftir kvöldmat!
Er eiginelga pínu uppgefinn núna, spurning samt um að halda áfram á þessari braut og hlaupa t.d. fyrir vinnu á daginn þar sem maður byrjar ekki fyrr en seinnipartinn? Hver veit :)

Já uuu en annars allt semi ágætt að frétta... segi bara eins og James Blunt kallinn "my life is brilliant".
Um að gera að taka lífinu með ró, en ef maður bíður endalaust... vaknar maður einn daginn og áttar sig á því að lífið var að bíða eftir manni :)

Photobucket


- Heidarr
Heiđar Róbert

Ferskur í dag!

15. mars 2008 klukkan 14:53
Já í dag er eitthvað ekki alveg eins og alltaf skal ég segja ykkur, sem virðast ennþá sækja þessa síðu þó ég hafi ekki bloggað síðan um áramótin!
Í fyrsta lagi er ég í fríi í dag! Hvað er í gangi þar? Og í öðru lagi er ég að blogga, sem hefur ekki tíðkast mikið á þessu ári.

En ég vaknaði svo orkumikill að ég vissi varla hvað ég átti af mér að gera... búinn að sofa og sofa og til í að taka aðeins á. Svo ég tók upp á þeirri vitleysu að fá lánaðan mp3 spilara hjá Gunna bró og skella inn nokkrum slögurum. Síðan var bara skellt sér í þægileg föt og farið út að HLAUPA! Jább, hljóp út Hamragerðið og að Þingvallastræti og fylgdi því að Hlíðarbraut og alla leið út í Strax. Hljóp svo smá krók og tók Borgarbrautina og Dalsbrautina heim, sem er alveg ágætis vegalengd skal ég segja ykkur :D

Photobucket

Á leiðinni var ég að hlusta á tónlist en allt í einu heyrði ég eitthvað tíst fyrir aftan mig á einum af þessum "krókum" sem ég tók á leið mína, leit aftur og sá að þar var þessi svakalegi varðhundur alveg snælduvitlaus á eftir mér...
Ég held hann hafi jafnvel náð næstum því allt að 15 sentimetrum að hæð og var vígalegur í meira lagi. Ég stoppaði bara aðeins til að klappa honum þar til eigandinn kom og afsakaði littla krílið :P

Annars er bara allt gott að frétta af manni, margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast (já, í alvöru!).

Spurning um að spila aftur með Mývetningum í sumar? Hver veit, ef þeir verða með lið er "starplayer"inn alveg til í annað season ;)

Allavega þá erum við Depill farnir í sturtu...
bæjó! ;)

Photobucket - Heidarr
Heiđar Róbert

Prófíll

  • Nafn: Heiđar Róbert
  • Netfang: ashikodi@hotmail.com
  • Símanúmer: 6912327
  • Kyn: kk

Könnun

Subway er