Ferskur í dag!
15. mars 2008 klukkan 14:53
Já í dag er eitthvað ekki alveg eins og alltaf skal ég segja ykkur, sem virðast ennþá sækja þessa síðu þó ég hafi ekki bloggað síðan um áramótin!
Í fyrsta lagi er ég í fríi í dag! Hvað er í gangi þar? Og í öðru lagi er ég að blogga, sem hefur ekki tíðkast mikið á þessu ári.
En ég vaknaði svo orkumikill að ég vissi varla hvað ég átti af mér að gera... búinn að sofa og sofa og til í að taka aðeins á. Svo ég tók upp á þeirri vitleysu að fá lánaðan mp3 spilara hjá Gunna bró og skella inn nokkrum slögurum. Síðan var bara skellt sér í þægileg föt og farið út að HLAUPA! Jább, hljóp út Hamragerðið og að Þingvallastræti og fylgdi því að Hlíðarbraut og alla leið út í Strax. Hljóp svo smá krók og tók Borgarbrautina og Dalsbrautina heim, sem er alveg ágætis vegalengd skal ég segja ykkur :D

Á leiðinni var ég að hlusta á tónlist en allt í einu heyrði ég eitthvað tíst fyrir aftan mig á einum af þessum "krókum" sem ég tók á leið mína, leit aftur og sá að þar var þessi svakalegi varðhundur alveg snælduvitlaus á eftir mér...
Ég held hann hafi jafnvel náð næstum því allt að 15 sentimetrum að hæð og var vígalegur í meira lagi. Ég stoppaði bara aðeins til að klappa honum þar til eigandinn kom og afsakaði littla krílið :P
Annars er bara allt gott að frétta af manni, margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast (já, í alvöru!).
Spurning um að spila aftur með Mývetningum í sumar? Hver veit, ef þeir verða með lið er "starplayer"inn alveg til í annað season ;)
Allavega þá erum við Depill farnir í sturtu...
bæjó! ;)
- Heidarr

- HeidarrHeiđar Róbert

En ekki að spyrja að því að þú þyrftir þá að bæta það upp með einhverju svona extreme hehehehe..........
Gaman að sjá líf hér aftur, ég er ein af þeim sem alltaf kíki.......
Love you
Gunna Magga
En út að skokka nokkuð gott ég verð einmitt að fara að gera sollis ég er orðin lafmóð og #pung#sveitt þegar ég næ á milli ljósastaura..