Nýr dagur - Nýtt blogg...
17. mars 2008 klukkan 14:59
Já, þið sjáið rétt. Hér er ég að blogga mitt þriðja blogg á þriðja degi!
Allavega þá vildi ég byrja bara á smá tauti að þessu sinni :)
Eða það er nú bara þannig að ég skil ekki suma dýraeigendur...
Ég var að keyra Eyjafjörðinn áðan (meira um það á eftir) en allavega á leiðinni út að Hrafnagili þá var ég að keyra á 90 og sé þá tvær manneskjur á göngu eftir veginum en á móti mér kemur hlaupandi á fullu hundur! Afhverju var hann laus? Hvað ef hann hefði hlaupið á bílinn? Ætli hundar geri sér grein fyrir því hvað gerist ef þeir fara rétt svo fyrir bílinn? Gæti vel trúað að þetta fólk hugsi að þetta sé góður hundur og hlíðir þeim alveg, gerir engum mein og þarf ekkert að vera í bandi og allt það... Eeen... hvað ef málið snýst ekkert um hvað hundurinn gerir heldur hvað gerist fyrir hundinn?
Á leiðinni til baka, hinumegin í firðinum, var ég að keyra framhjá bóndabæ og þá kom hlaupandi út á götuna annar hundur og mér dauðbrá, á ekki nema 90 aftur og munaði minnstu að ég misti stjórn á bílnum. Bara svona spá, að ef einhver alveg óreyndur ökumaður er á ferð þarna er ekkert víst að hann nái að beygja frá hundinum.
Allavega þá er versta upplifun mín í þessu lífi sennilega þegar ég var að spila fótbolta og kona gekk framhjá vellinum með hund í bandi, hundurinn síðan fór út á götu og það endaði þannig að við horfðum á greyjið deyja á miðri götunni eftir að jeppi keyrði á hann á ekki nema svona 40kmh.
Já okey, komið nóg af þessu?
Allavega, keyriði hægt um hverfisgötur og hundaeigendur endilega passið ykkur á því að allir hundar hafa ekki vit á umferðinni!
Jæja, en þá að einhverju allt allt öðru, fór að spá... hvað er langt síðan þið settust bara upp í bíl og keyrðuð einhver bara til að skoða? Ekki bara keyra á 120 milli staða heldur bara njóta útsýnisins? Maður þarf nefnilega ekki að keyra nema rétt út fyrir bæjinn til að sjá ótrúlega fallega staði.
Ég allavega fór í dag smá rúnt og fékk mér göngutúr í skógi í snjónum með fuglunum og villiköttunum ;)
Ægilega gaman og fallegt. En bíllinn minn sem ég var svo duglegur að þrífa í gær, er kominn í sitt gamla góða form ;) hehe
smá myndir frá því í dag...

Jæja, allavega, mottó dagsins, hlutirnir gerast ekki af sjálfum sér... uppgjöf er að tapa
hmm já, farinn í vinnu :)
-Heidarr

Heiðar Róbert

Flottar myndir elskan og mottóið...... svo satt ;o)
Love you, Gunna Magga