Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Leit

Draumheimar uppfćrđir?

23. mars 2008 klukkan 07:12
Tók einhver annar eftir því í nótt?

allavega þá er klukkan að verða 7 núna og ég á að mæta í vinnu eftir rúman klukkutíma... ég er gjörsamlega ósofinn að öllu leiti og enn í sjokki eftir nóttina. Mig er búið að dreyma þvílíka ruglið og fuuuullt af fólki úr fortíðinni sem ég var eiginlega bara búinn að "gleyma". Eða semsagt ekki gleyma heldur hef ekki samband við enn þann dag í dag.
Ekki voru þetta spennandi draumar, ég vaknaði eitthvað um kl 3 og hélt ég færi ekkert að sofa aftur eftir 2 tíma svefn. Þá var mig að dreyma að ég væri á leiðt til Gísla og Söndru. Ég var með fullt af smádrasli með mér og kominn í blokkina þeirra, sem var allt í einu með lyftu? :S
Allavega þá var ég að tala við Stebba í símann (sem ég hef aldrei gert og hann er með símafóbíu). Hann var að reyna að útskýra fyrir mér einhverja tegund af áfengi þegar síminn deyr og rafmagn dettur af blokkinni. Þá sé ég kúnna úr búðinni standa þarna öskureiður yfir því að allt dótið var útum allt þarna, sem ég var með. Ég byrja að týna það upp í balann sem ég var með :S Sé svo að hann er að reyna að fá lyftuna til að virka, hún fer upp og skellur svo niður með látum. Litirnir og hljóðin voru svo raunveruleg, ég hélt þetta væri að gerast. Svo kviknaði í blokkinni og ég lá hérna í sjokki! Var að hugsa, ætli þetta hafi verið mér að kenna, var þetta útaf draslinu mínu? Hverjum get ég bjargað??? Sjitt þetta var aðeins of raunverulegt.
 Fór fram og slökkti á tölvum og drasli hehe fékk mér vatnssopa og lagðist aftur en hræddur við að sofna.
Ég man ekki mikið meira úr þeim draumnum en ég var allavega alveg að skíta á mig

Mér tókst að sofna aftur... og þá dreymdi mig alveg helling, áfram í lit og bara í alvöru eins og þetta væri að gerast.
Það sem gerðist var meðal annars að ég gleymdi lyklinum í bílnum mínum hér heima, fór inn og þegar ég leit út aftur var hann horfinn.
Ég fór út og sá BMWinn, bílinn minn, og merktann bíl af Þrif og ræstivörum tekna, ég hljóp aðeins út götuna í sjokki og sagði Rúnari frá þessu, hann sagði bara já við getum ekkert gert. Við kaupum bara nýja.
Einhverra hluta vegna var ég þá kominn í einhverja aðra vinnu og þar sá ég Hollywood (Óskar Pál) og hann var búinn að kaupa sér hús sem hann átti enganveginn efni á. Hann var að fara selja það til að eiga fyrir bílnum sínum. Ég spurði hann hvernig hann hefði það og það var sko ,,Skiptir það máli?" svarið. Hef ekki séð hann í meira en ár. Þar hitti ég Lenu Sif á einhverjum rugluðum jeppa og nýbúin að taka venjulegt bensín á hann! uuu og það var á bílastæðinu hjá Bjarna nema hann var ekkert þarna. Eitthvað fólk safnaðist saman þarna og ég þekti engann en allir fóru að reykja nema ég... og einn gaurinn spurði hvort mér þætti þetta óþægilegt og ég sagði neinei, hann rétti mér þúsund kall og sagði hérna. Ég tók hann og gekk í burt. Það var svartur köttur áberandi í þessum draum... var eitthvað í kringum húsið mitt.
Ég veit ekki alveg hver það var en það var einhver stelpa hjá mér og hún var að vekja Gunnar Bjarka sem var í gamla Jennýar herbergi sem er ekki í notkun núina. Ég skildi ekkert afhverju hún var ekki hjá mér eftir að ég var nýbúinn að hafa martröð! haha já, mig dreymdi að ég skildi ekkert í því að hún var ekki að knúsa mig eftir þessa svaka martröð fyrr um nóttina ;) - man voða lítið meira núna...

en já... mig hefur ekki dreymt þannig að ég muni það svo vikum skiptir. En nú var aldeilis snúið því við. Vaknaði tvisvar upp við draum í miklum lit, hljóð og myndgæðum og ákvað bara að blogga því ég nennti ekki aftur að sofa :P Ekkert gaman að sofa ef maður er bara í óþægindum. Reyni bara betur næstu nótt ;)
Jæja, hættur þessu rugli ;) Gleðilega páska.

- Heidarr
Heiđar Róbert
kolla skrifar ...
jiii... langar og skemmtilegt blogg :D En leiðinlegt með þessa drauma þína, samt svoldið gaman að þeim. Gleðilega páska Heiðar minn :D
23. mars 2008 klukkan 13:06
Gunna Magga skrifar ...
Það munar ekkert um það elskan, vonandi nærðu að sofa í nótt elskan....... ;o)
Það er bara ömurlegt að vakna upp með svona martraðir og enn verra að geta ekki sofið......
Gleðilega páska elskan.......... ;o)
Love you,, Gunna Magga
23. mars 2008 klukkan 23:38
Jóhanna skrifar ...
 
Herðu Heiðar á ekkert að fara að blogga?? ég er búin að bíða og bíða og bíða og bíða...........................................
29. mars 2008 klukkan 10:22
Heiđar Róbert skrifar ...
Heiđar Róbertaaaahhh jú ţetta er í vinnslu sko eđa hérna uuh ehem jú, ég er alveg ađ fara blogga sko :P
29. mars 2008 klukkan 11:10
kolla skrifar ...
já heiðar .... NÚNA STRAX.... en ég kem um helgina norður :D:D:D:D:D
01. apríl 2008 klukkan 22:19
Jóa skrifar ...
 
Heiðar sko þótt þú sért að eltast við einhverja dömu er algjör óþarfi að gleyma okkur hinum svo BLOGGAÐU
02. apríl 2008 klukkan 16:24

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Heiđar Róbert
  • Netfang: ashikodi@hotmail.com
  • Símanúmer: 6912327
  • Kyn: kk

Könnun

Subway er