Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Leit

Tatata tatata tatata

14. október 2007 klukkan 18:14
Það eru nú aldeilis furðulegir hlutir í gangi. Það er búið að taka niður tréin í garðinum! Öll riiiisa tréin farin :( Þau hafa verið að skemma lagnir og eitthvað þannig að það lekur inn á gólfið á neðri hæðinni eða eitthvað rugl... ömurlegt. Verið að mála húsið og virðist ætla verða nokkuð flott sko en svo þarf að skipta um gólf eða eitthvað... bölvað vesen :P

Í gær var ansi góður dagur þrátt fyrir að Íslendingar hafi skitið á sig gegn Lettum.
Við Gísli kláruðum tímabil í FM og stóðum okkur voðalega misvel. Næsta verður betra ;)

Í dag á hún elsku amma mín, Elsa Benediktsdóttir, 65 ára afmæli og ég var að koma úr kökum og kaffi hjá henni. Óska henni til hamingju með daginn :)
Er svo að fara í fótbolta með Bjarna og Ella væntanlega og verður bara stuð eins og vanalega ;) Vantar einn aðila í hópinn í kvöld og verður sárt saknað.

Undanfarið hefur ég verið ægilega mikið að spjalla við stelpu sem býr því miður fyrir sunnan en hún er algert yndi og rosalega sæt og skemmtileg og stefnan sett á að hitta hana einhverntíman við tækifæri :) Með því skemmtilegra sem ég geri er að spjalla við hana en ætla nú ekkert að fara koma með það á netið hver það er allavega €kk1 $7r4X ;)

Mér líður allavega ofboðslega vel og allt frábært eins og vanalega :)

Ætla enda bloggið bara á sætu myndbandi sem fær mig ávalt til að brosa...
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Heiđar Róbert

Blóđ, sviti, og engin tár

08. október 2007 klukkan 00:53
Vá... langt síðan maður bloggaði huhh! Komið alveg tími á það held ég.
Planið er að kíkja á Laugar næstu helgi. Fæ allt í einu smá helgarfrí og er þá bara tilvalið held ég að skreppa á Laugar á laugardeginum með pitsu og horfa kannski á landsleikinn eða eitthvað í sjónvarpinu með Krissa.

Ég er eiginlega búinn að vinna of mikið undanfarið en samt bara gaman ;) Alltaf gaman í vinnunni og nægur tími samt til að gera hvað sem er.
Fór í kvöld í þriggja klukkutíma fótbolta með Gísla, Bjarna, Ella og frændum hans ásamt einhverjum strákum úr Lundó og var það bara snilld. Var frekar gróft og ég held að allir hafi verið aðeins meiddir og þreittir eftir þrjá tíma.
Planið að gera þetta aftur á miðvikudaginn og svo næstu helgi líka;)

Ætla bara hafa þetta stutt enda ekki í bloggformi... en enda þetta á mynd vikunnar á akureyri.is frá því fyrir stuttu, þar sem Gunnar er að sýna smá tilþrif:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Heiđar Róbert

- ,,Silence is easy

22. september 2007 klukkan 18:40
Síðustu dagar eru búnir að vera alveg crazy, mikið að gera í vinnunni og bara gaman auðvitað ;)
Fór í gær til Gísla og var þar til hálf fjögur að rústa honum í Fífa 2007 og var það mikil snilld... :P Búinn að skjella inn teljara á síðuna sem telur niður í Landsleikinn sem við ætlum að fara suður á ;)

Annars langar mig svolítið til að setja hérna tvær myndir allavega af henni Söndru minni :D
Hún kom og var hjá okkur í vinnunni nokkra tíma í gærkvöldi og þau fóru saman eitthvað út. Svo kom Gísli til mín og sagði mér að Sandra vildi eitthvað tala við mig og hún væri úti. Ég fór þá út og ætlaði að tala við hana. Þegar ég kom út gat ég samt ekki annað en hlegið og náð í myndavélina :P Hún var ekkert ofur kát með það en allavega var þetta ægilega kætandi:
Photo Sharing and Video Hosting at PhotobucketPhoto Sharing and Video Hosting at Photobucket

Þarna var semsagt Villisöndru komið fyrir í búri eða grind sem er ekki hægt að opna. Hún er mjög þung og ég þurfti að lyfta henni upp á meðan hún skreið einhvernveginn undan henni... alveg ótrúlegt að láta plata sig í svona hehe

Annars er ég bara í fríi í dag í fyrsta sinn í 17 daga og er það alveg ágætt :) vinna samt í fyrramálið en það er svosem alltaf gott að vera í vinnunni líka.
Verður væntanlega bara tekið því rólega í kvöld og kannski rúntað eitthvað og kíkt á Söndru og Gísla.

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

- ,,Nothing worthwhile is easy"

Heiđar Róbert

Timbaland feat. Keri Hilson - The Way I Are (Nephew Remix)

18. september 2007 klukkan 01:32
Jæja, þá er mánudegi lokið! :)

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Búið að vera bara "vinna sofa vinna" tímabil undanfarið en samt gaman :) Alltaf gaman í vinnunni og svo skrapp ég aðeins með Bjarna á Búlluna um helgina og fengum okkur tvöfaldann burger með beikoni og frönskum, frekar næs :) Svo var bara tekið tveggja tíma rúntur og rætt málin. Ég svona eiginlega lofaði honum að kíkja eitthvað með honum út á föstudaginn eftir vinnu, enda í fríi laugardag - kominn tími á að taka einn dag í frí næstu helgi? Jáh, held það nú. En svo verður næsti sunnudagur væntanlega fyrsti dagurinn sem ég er vaktstjóri í Strax þannig að það verður bara stuð.

Og að öðru, í dag tókst að sannfæra Gísla um að koma með suður á landsleik Íslands og Letta í næsta mánuði :D
Verður auðvitað bara gaman! Spurning hvort það verði bara farið á leikinn eða gerð ferð úr þessu, kemur allt í ljós síðar...
Leikurinn er í Laugardalnum, Laugardaginn 13.okt kl 16.00 :)

Í dag var svo meira að segja pantað sér klippingu! Hver hefði trúað því að ég nennti að standa í þannig veseni :P Maður verður aldeilis orðinn sætur á uuu miðvikudaginn mynnir mig ;)
Talandi um miðvikudag... það er 19 september og þá verður Gunnar 12 ára! :D

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Ávalt flottur ;)

Ég hef komist að því, að það er alls ekki sniðugt að tala of mikið um slæma hluti... T.d. um daginn þá var ég að keyra með Gísla á xxx kmh og við vorum að tala um það hvað hvernig það væri ef löggubílar væru ekki allir hvítir... þá væri maður alltaf í veseni með að sjá lögguna. Svo keyrði ég hann heim og var svo tekinn af bláum löggubíl í þessari sömu ferð og við vorum að tala um þetta!
Og svo á sunnudaginna þá var kúnni sem misti nammi út um allt gólf og sagði mér frá því, auðvitað ældi ég því útur mér að "þetta væri allt í lagi, það væri svosem margt verra sem hefði farið í gólfið. Eins og t.d. fetaostur, það hefði verið glatað ef þú hefðir mist fetaost í gólfið"
Hvað haldiði að gerist síðar á vaktinni?

Góða nótt ;)
- Heidarr
Heiđar Róbert

The Rollng stones

16. september 2007 klukkan 01:46
Já nú er jafnvel kominn tími á nýtt blogg eða svo :)
Það er búið að vera frekar brjálað að gera í vinnunni eins og vanalega, ég var að vinna næturvakt síðustu nótt frá ellefu um kvöldið til átta um morguninn og svo seinna þann dag átti ég að mæta fjögur sem ég gerði, og var að koma heim núna af þeirri vakt kl eitt. þessi 15.sept verður ágætlega borgaður ;)
Samt ömurlegt að hafa þurft að beila á Söndru en ég ætlaði að fara og læra með henni :( Bara enginn sem nennti að vinna þannig að ég þurfti að vera lengur og svona... frekar leiðinlegt - sorry Sandra!

Er búinn að taka tvær næturvaktir síðustu tvær nætur sem er bara rosalega gaman :P svaka stuð bara og fullt af klikkuðu liði sem kíkir á mann á nóttunni. Lenti í því síðustu nótt að það kom einhver 16 ára stelpa upp að mér og kyssti mig rembingskossi bara og ég hafði sko ekkert val! Henni fannst ég bara eitthvað svo yndislegur sagði hún. Mér fannst þetta nú pínu óþægilegt ef ég á að segja eins og er hehe.

Annars er nú lítið að frétta af manni... langar að kíkja á landsleikinn fyrir sunnan í næsta mánuði, held 13.október eða eitthvað þannig... spurning um að kíkja á það ;)

Og um daginn lenti ég í því að það kom óboðinn gestur inn í herbergi til mín, auðvitað tók ég myndir af honum:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Eins og þið sjáið þá var ég í bráðri lífshættu, vígaleg skeppna sem réðst að mér, en var ekki svo góð með sig þegar búið var að fletja hana við parketið ;)

og svo afþví að mynd segir meiren þúsund orð þá ætla ég að skella inn nokkur þúsund orðum hér því ég hef ekkert að skrifa um :P

Yndislega systir mín hún Jenný að læra og sinna ljóni heimilisins:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Gunnar ekki alveg að átta sig á heimanáminu:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Enn einn kattaslagurinn:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Myndirnar koma samt ekki alveg jafn vel út á þessari síðu, svona samanskroppnar og þegar ég skoða þær í fullri stærð finnst mér, en ég á eftir að finna út hvernig ég laga það síðar...

uuu en bara komið nokkuð gott í dag bara held ég :)
Heiđar Róbert

Styttist í jólin?

13. september 2007 klukkan 16:41
Já í gær byrjaði að snjóa við Akureyri! Frekar magnað alveg og klikkað reyndar líka. Svo í dag snjóar bara meira eða reyndar snjóar og rignir og bara skítaveður og rok :)
Það fór nú bara þannig að eftir vinnu í gær kíktum við Gísli og Sandra upp í Hlíðarfjall, það var alveg stórkoslegt að keyra þarna upp eftir með jólatónlist í botni og fara svo í snjóstríð í byrjun september ;)

Hérna er mynd sem ég tók af Gísla með nýju myndavélinni. Ég held ég hafi bara aldrei séð einhvern svona spenntann fyrir snjó áður :D
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Það er jú eins og hann sagði, byrjað að snjóa og þá fer að styttast í jólin, og þegar jólin koma fer að styttast í páskana, og þegar páskarnir koma fer að styttast í sumarið. Þannig að það er mikið gleðiefni að snjórinn sé kominn því þá fer að styttast í sumarið hehe ;)

Svona leit Hlíðarfjallið út í gær:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Annars var mikið að gera í gær við að taka myndir :P Annsi gaman að eiga myndavél og fékk enginn frið fyrir mér auðvitað... en sumir fá aldrei nóg af því að láta taka myndir af sér, t.d. þessir vitleysingar:
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket
Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

En dagurinn í dag var fljótur að breytast úr því að vera frídagur í það að ég er að fara vinna kl 23 í kvöld og tek næturvakt til 8 í fyrramálið, og svo á morgun er það sama eða semsagt næturvakt til 8 og síðan mæti ég á kvöldvakt seinna þann daginn :P en svo fer þetta yfir í að vera bara kvöldvaktir að mestu leiti held ég :)
Heiđar Róbert

Myndavél

11. september 2007 klukkan 16:01
Í dag eftir vinnu fór ég og keypti mér myndavél :) frekar nett græjja sýnist mér...

Þetta er Sony DSC-W70 vél með 2,5" LCD skjá og er svona glæsileg:

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

7,2 mega pixels og mjög lítil og nett. Hún kom með 58 MB internal memory en ég ákvað að fá mér líka Lexar Premium memory stick sem er 2GB að stærð til að stækka minnið í henni :)

:D
Heiđar Róbert

Egils Maltextrakt

10. september 2007 klukkan 23:59
Já, ég veit aldrei hvað ég á að skíra blogg... hvernig skírir maður blogg?

Það heldur áfram að vera klikkað að gera hjá manni :)
Var að vinna í morgun frá 8-13.30 og var svo að brasa og vesenast út um allan bæ til 16 en þá fór ég á Dalvík með Gísla og við komum ekki heim fyrr en um 23 leitið... ;) Roooosalega komum við samt miklu í verk í dag og gengur bara geggjað vel allt saman :)
Síðan komst ég að því að sektin mín var ekki nema tæpur 20.000 kall sem ég borgaði bara strax í dag og var alveg frábært ;)

Svo er vinna í fyrramálið kl 8 en ég er ekki alveg að nenna að fara að sofa þó ég sé rosalega þreyttur... er bara ekki í sofi stuði eiginlega :)

Held að stefnan sé sett á að kíkja á Laugar á þriðjudaginn eftir tvær vikur og fá burgers í hádegismatinn :P bara næææs...


Later...
Heiđar Róbert

Allir dagar eru öđruvísi

09. september 2007 klukkan 00:08

Já, þannig er nú það :P Ef ég ætti að skrifa bók þá yrði hún væntanlega titluð ,,Hvernig á að eyða peningum í ekki neitt“.

Það er jú einusinni þannig að ég er það fær á þessu sviði að ég gæti haldið námskeið í því að láta peninga hverfa ;)
Bara núna á nokkrum dögum er ég búinn að eyða 40.000 í bækur, 45.000 í skólagjöld og svo 190.000 í tölvu og fylgihluti og var það allt fyrir skóla og nám sem ég ákvað síðan að geyma ;) Tölvan er samt góð :P

En já það nýjasta var einmitt í gær, ég og Gísli fórum á Dalvík aftur og vorum þar frá 8 um morguninn til 15.20. Það var aaaaalgjör snilld, vá hvað það var gaman og tók ekkert smá á. Við vorum rosalega þreyttir og sveittir og þurftum að fara í sturtu áður en við færum að vinna kl 16.00 í Strax á Akureyri. Þannig að ég keyrði bara eins og brjálaður og kom Gísla heim tímanlega til að hann gæti farið í sturtu og svo fór ég bara heim og lenti í mikilli umferð og komst ekkert áfram fyrr en ég komst á borgarbrautina, hvað gerir maður þá ef maður er á hraðferð? Eykur aðeins hraðann :P

Svo var ég kominn heim, skildi bílinn eftir í gangi og ætlaði að hlaupa inn og fara í sturtu þegar einhver maður í bláum súbarú legasí kallar á mig. Ég sný mér við og ætla að ræða við hann, þá byrjar hjartað að síga alveg niður í maga og finn hjartsláttinn eins það sé varið að berja mig með hamri! Var ekki þessi maður klæddur löggugalla! :( Þá var þetta ómerktur löggubíll og ég beðinn að koma aftur í og ræða við þá.

Auðvitað höfðu þeir verið að elta mig en ég var heppinn að ég sá þá ekki, stakk þá af, og þeir náðu ekki að mæla mig í íbúðarhverfinu – ef þeir hefðu náð því væri ég búinn að missa leyfið og fengi töluvert hærri sekt. En þeir náðu mér semsagt á 87kmh á 50 svæði, eða 37kmh yfir hámarkshraða :)
Það var jú líka þannig að þær mínútur sem ég ætlaði að græða þarna fóru í að svara einhverjum spurningalista í aftursætinu á lögreglubíl. Fannst þetta soldið eins og eitthvað ,,gallúp live“ bara, yfirheirsla um eitthvað ómerkilegt eins og hvar ég vinn og eitthvað rugl.

Þarna tapaði ég meiri tíma en ég græddi og þar með kom út í þeirri stöðu að ég skipti um sokka og fór í vinnuna :/ tók með mér handklæði og þvoði mér að ofan í vinnunni, tók eiginlega sturtu í vaskinum hehe ;)

En já, þetta ætti að vera sekt upp á 50.000 kall, vonandi ekki meira :P en það er allt í lagi, nenni ekkert að spá í því, verð bara að fara að venja mig á að keyra hægar, hef tekið eftir því að ég keyri jafnvel allt of hratt þó ég sé ekkert að drífa mig! Hvað er að?
Alltaf bara verið mottóið að ,,ef maður kemur öllum heilum á áfangastað, bíllinn í lagi og engin sekt - þá hefði maður getað keyrt hraðar“... en það er víst ekki þannig, maður verður aðeins að átta sig á því :)

En svo var bara tekið kvöldvakt til 23.30 þannig að þetta var 15,5 tíma vinnudagur sem er bara nokkuð gott :) svo var bara farið til Gísla og tekið smá Fífa keppni til þrjú mynnir mig en þá fór ég heim að sofa.

Í morgun vaknaði ég svo símann kl.10 þegar ég var beðinn að mæta klukkutíma fyrr eða semsagt 15-23 og þá var bara tekið eitthvað hangs til þrjú og þá mætti ég í vinnu og var alveg ruglað mikið að gera þannig að þetta leið fljótt. Á morgun er svo kvöldvakt og á mánudaginn aftur á Dalvík!!! :D

Annars er lítið annað að frétta sko... Hallur (verslunarstjóri) var reyndar að biðja mig að taka að mér að vera vaktstjóri annan hvern sunnudag í vetur, eða semsagt helgarnar sem ég á ekki að vera að vinna og er það bara gaman :)
En ég held þetta sé komið gott af bloggi, búið að vera mikil vinna undanfarið en ég fer alveg að fara gera eitthvað í þessari síðu, lofa! ;)

Heiđar Róbert

Jćja ţá :P

06. september 2007 klukkan 20:56
Vegna pressu þá hef ég ákveðið að prufa bloggar.is síðu :)
Var að blogga eitthvað smá á central en prufa þetta núna... Ætli ég komist nokkuð upp með annað en að setja einhverjar myndir og eitthvað þessháttar á þessa síðu, nú þar sem Sandra er eitthvað að reyna að draga mig áfram í þessu ;) - Það kemur bara með tímanum...

Allavega þá er ég bara nokkuð sáttur með gang mála í öllu sem er að gerast í kringum mig og hef ekki liðið svona vel bara í nokkur ár held ég ;)
Allt í vinnunni er að ganga eins og í sögu en ég einmitt ákvað að taka pásu frá skóla og fara að vinna aðeins áður en ég tek háskólanám. Ég er allavega ekki ennþá farinn að sjá eftir þeirri ákvörðun og efa að ég muni nokkurntíman gera það :)
Á morgun verð ég að vinna á dalvík frá 8 um morguninn og fer svo á kvöldvakt í strax með Gísla þannig að það er alveg nóg að gera og bara mjög gott mál... er alveg að fíla þessa tilbreytingu ;)

Kvöldið í kvöld er bara frekar easy, bara hanga heima og slaka á enda verður morgundagurinn ekkert auðveldur. Nú er það bara að hlusta á góða tónlist og vera við tölvuna í nuddstólnum, næææs!

Æææægilega er allt eitthvað svo gott í dag :)
Heiđar Róbert

Prófíll

  • Nafn: Heiđar Róbert
  • Netfang: ashikodi@hotmail.com
  • Símanúmer: 6912327
  • Kyn: kk

Könnun

Subway er